Roman Ægir í aðalhlutverki í kvikmyndinni Ótta
Roman Ægir, nemandi í kvikmyndaleik við Kvikmyndaskólann, hefur verið að stíga sín fyrstu skref í kvikmyndagerð með kvikmyndinni Ótti.

Hann fer þar með aðalhlutverk auk þess að koma að handriti og framleiðslu. Við fengum hann til að segja okkur aðeins frá verkefninu, leiklistinni og hvernig námið hefur nýst honum í ferlinu.
Geturðu sagt aðeins frá myndinni og þínu hlutverki?
Kvikmyndin okkar Ótti fjallar um ungan mann sem kemur úr erfiðum aðstæðum. Hann kynnist bæði lögreglumanni og glæpamanni á sama tíma og þarf að velja hvor leiðina hann ætlar að taka í lífinu. Ég á upprunalegu söguna en síðan skrifuðum ég og pabbi minn handritið og framleiddum myndina saman.
Ég leik Arnór, sem er í grunninn yngri útgáfa af sjálfum mér – ungur maður sem þarf að finna sjálfan sig og sinn stað í heiminum. Það sem heillar mig við karakterinn er að hann er með gott hjarta þótt heimurinn virðist vera á móti honum. Ég er trans maður en Arnór er ekki trans, bara strákur sem fæddist sem strákur og það fannst mér spennandi og finnst mér mikilvægt að trans fólk leiki ekki alltaf bara trans fólk heldur að það fái allskonar hlutverk.
Hvernig var að vinna á “alvöru” setti miðað við verkefni í skólanum?
Að vinna á alvöru setti er mjög gaman. Í þessu verkefni var ég að vinna með pabba mínum þar sem hann leikstýrði og ég lék.
Þetta var low budget indie mynd þannig að ég var svolítið í öllu – ég gerði til dæmis callsheet í nokkur skipti og hjálpaði við að finna aukaleikara fyrir senur.
Aðalmunurinn á þessu og verkefnum í skólanum er að dagarnir eru lengri og fleiri. En í grunninn virkar þetta mjög svipað og það sem við lærum í skólanum.
Hvernig hefur námið hjálpað þér í þessu ferli?
Námið í Kvikmyndaskólanum hefur hjálpað mér mikið að mynda tengsl við allskonar fólk og fá fleiri tækifæri til að leika. Ég efast ekki um það að þessi tengsl munu hjálpa mér í framtíðinni í næstu kvikmynd sem ég ætla að gera.
Ég sé mikinn mun á mér eftir bara eitt ár á leiklistarbrautinni – ég er búinn að læra helling. Áður lærði ég líka tvö ár í kvikmyndatækni og eina önn í leikstjórn og handritsskrifum.
Ég hef sérstaklega verið að nýta mér karaktersköpun og að leika með öllum líkamanum. Einnig hef ég orðið betri í að læra texta fyrir bæði kvikmyndaverkefni og leikrit.
Hvað heillar þig mest við leiklist?
Það sem heillar mig mest við leiklist er að fá pláss til þess að opna mig og tjá mig. Að fólk taki eftir mér (vera í sviðsljósinu) og að hafa góð áhrif á heiminn.
Ég vissi að þetta væri ég til í að gera eftir að ég mætti sem gestur á Edduna þegar ég var nýorðinn tvítugur og sá allt kvikmyndargerðafólkið og leikarana vera samankomin að taka á móti verðlaunum vegna kvikmynda sem þau voru í.
Hvað myndir þú segja við einhvern sem er að hugsa um að fara á leiklistarbraut í Kvikmyndaskólanum? Og hvaða ráð myndir þú gefa byrjendum?
Ég myndi segja einhverjum sem er að fara á leiklistarbraut í kvikmyndaskólanum að þetta verði mjög gaman en krefjandi og það sem þau leggja á sig þá fá þau það tilbaka. Og ég myndi segja byrjendum að ef þeim líður eins og þau munu gera eitthvað stórt og þau framkvæma þá er bara tímaspursmál að það mun gerast. Ef þig langar að búa til bíómynd eða leika í bíómynd þá gerir þú það bara.
Við óskum Roman Ægi til hamingju með verkefnið og hlökkum til að fylgjast með honum á hvíta tjaldinu í framtíðinni.
Kvikmyndaskólinn fagnar fjölbreytileikanum og trúir því að sterkar sögur verði til þegar ólíkar raddir fá pláss. Við hvetjum öll sem hafa áhuga á kvikmyndagerð og leiklist til að sækja um. 🏳️🌈🏳️⚧️
Enn er opið fyrir umsóknir og er umsóknarfrestur til 30. júní.
→ Sækja um


